Erlendir ríkisborgarar. Ríkisborgararéttur. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 547/2026)

A kvartaði undan töfum við afgreiðslu á tilkynningu hennar samkvæmt lögum um ríkisborgararétt og þeirri afstöðu Útlendingastofnunar að slíkar tilkynningar sæti sams konar meðferð og almennar umsóknir um ríkisborgararétt.  

Umboðsmaður taldi, meðal annars að því gættu að kvörtunin laut með framangreindum hætti að starfsháttum Útlendingastofnunar, að rétt væri að aðfinnslurnar yrðu bornar undir dómsmálaráðuneytið áður en kvartað væri til umboðsmanns af sama tilefni.

   

Umboðsmaður lauk málunum með bréfi 30. október 2026.

  

   

Vísað er til kvörtunar A 12. september sl. en hún beinist að Útlendingastofnun og lýtur að meðferð stofnunarinnar á tilkynningu A samkvæmt 1. mgr. 3. gr. laga nr. 100/1952, um íslenskan ríkisborgararétt. Nánar tiltekið lýtur kvörtunin að þeirri afstöðu Útlendingastofnunar að slíkar tilkynningar sæti sams konar meðferð og almennar umsóknir um ríkisborgararétt en slíkt samræmist að mati A ekki efni og tilgangi fyrrgreinds lagaákvæðis, málshraðareglu stjórnsýslulaga og almennum kröfum um vandaða og lögmæta stjórnsýsluhætti.

Með vísan til framangreinds lýtur kvörtunin að málshraða en jafnframt starfsháttum Útlendingastofnunar að öðru en tengdu leyti. Samkvæmt 17. gr. laga nr. 100/1952 sæta ákvarðanir sýslumanns, Útlendingastofnunar og Þjóðskrár Íslands samkvæmt lögunum kæru til dómsmálaráðuneytisins. Í því samhengi er jafnframt rétt að vekja athygli á því að samkvæmt 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er unnt að kæra óhæfilegan drátt á afgreiðslu máls til þess stjórnvalds sem ákvörðun í málinu verður kærð til. Þessu til viðbótar skal bent á að Útlendingastofnun er undirstofnun dómsmálaráðuneytisins og lýtur, við rækslu verkefna samkvæmt lögum nr. 100/1952, hefðbundinni yfirstjórn þess, sbr. meðal annars a.-lið 28. töluliðar 3. gr. forsetaúrskurðar nr. 5/2025, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

Ástæða þess að framangreint er rakið er sú að samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er ekki unnt að kvarta til umboðsmanns ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds og það hefur ekki fellt úrskurð sinn í málinu. Ákvæði þetta er byggt á því sjónarmiði að stjórnvöld skuli fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir, sem hugsanlega eru rangar, eða annað í störfum sínum áður en kvartað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra. Á grundvelli þess hefur verið talið rétt að eftir atvikum hafi verið leitað til stjórnvalds, sem fer með yfirstjórn og eftirlit gagnvart því stjórnvaldi, sem kvörtun beinist að, áður en umboðsmaður tekur mál til meðferðar á grundvelli kvörtunar.

Þrátt fyrir framangreint hefur umboðsmaður Alþingis í ákveðnum tilfellum tekið til meðferðar kvartanir í tilefni tafa við meðferð mála og eftir atvikum óskað skýringa stjórnvalds í tilefni slíkra kvartana. Að því gættu að kvörtun A lýtur ekki einungis að töfum heldur jafnframt starfsháttum Útlendingastofnunar og málsmeðferð, sem þó tengjast umræddum töfum, tel ég rétt að þær athugasemdir, sem í kvörtuninni felast, verði fyrst bornar undir dómsmálaráðuneytið áður en kvartað er af sama tilefni til umboðsmanns. Hef ég um þetta sérstaklega í huga að dómsmálaráðuneytið getur að fenginni kæru á töfum við meðferð málsins, sbr. áðurnefnda 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, tekið afstöðu til þeirra athugasemda, sem í kvörtuninni er teflt fram um starfshætti Útlendingastofnunar.

Ákveði A að beina kæru til dómsmálaráðuneytisins með framangreindum en telur sig enn beitta órétti að fenginni afstöðu þess, getur hún leitað til mín á nýjan leik með kvörtun af því tilefni.

Með vísan til þess, sem rakið er að framan, er athugun minni á kvörtun A lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.