A kvartaði yfir töfum hjá Útlendingastofnun á afgreiðslu umsóknar um dvalarleyfi en af gögnum sem fylgdu kvörtuninni varð ráðið að rekja mætti tafirnar til þess að beðið væri niðurstöðu lögreglu um áreiðanleikakönnun á gögnum.
Af hálfu umboðsmanns var vísað til þess að í sambærilegum málum hefði komið í ljós að tafirnar væru af almennum toga en ekki bundnar við einstök mál. Því taldi umboðsmaður ekki tilefni til að taka kvörtunina til frekari athugunar. Í því sambandi var vísað til þess að tafir á málsmeðferð Útlendingastofnunar vegna biðar eftir niðurstöðum áreiðanleikakannana hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum hefði umboðsmaður þegar tekið til athugunar að eigin frumkvæði.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 28. október 2026.