Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Erlendir ríkisborgarar. Ekki ástæða til aðgerða. Ákveðið að hefja frumkvæðisathugun.

(Mál nr. 557/2026)

A kvartaði yfir töfum á meðferð Útlendingastofnunar á umsókn um dvalarleyfi.  

Þar sem fyrir lágu skýrar vísbendingar um að málsmeðferðartíminn væri ekki einskorðaður við mál A, m.a. að gættum tiltölulega nýlegum svörum Útlendingastofnunar til umboðsmanns í sambærilegum málum, taldi umboðsmaður ekki nægilegt tilefni til frekari athugunar á kvörtuninni.  

Umboðsmaður upplýsti A um að kvörtun hennar og fleiri af sama toga hefðu orðið umboðsmanni tilefni til að taka málshraða við meðferð mála hjá Útlendingastofnun til almennrar athugunar að eigin frumkvæði.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 20. október 2026.

  

  

Vísað er til kvörtunar A 16. september sl. en hún beinist að Útlendingastofnun og lýtur að því að meðferð umsóknar um dvalarleyfi hafi dregist úr hófi. Af kvörtuninni verður ráðið að umsókn hafi verið lögð fram í ágústmánuði 2025 en eiginleg athugun Útlendingastofnunar hafi hafist fyrir um fjórum mánuðum þegar tilgreindra gagna hafi verið óskað. Samkvæmt kvörtuninni upplýsti Útlendingstofnun í júnímánuði sl. að með vísan til nánar tilgreindra atvika málsins hefði málið verið sent lögfræðingum stofnunarinnar til frekari athugunar.

Með vísan til efnis kvörtunar þinnar tek ég fram að almennt er ekki gert ráð fyrir að umboðsmaður hafi afskipti af máli fyrr en stjórnvöld, þar með talið æðra stjórnvald eftir atvikum, hafa lokið umfjöllun sinni um það, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Þegar umboðsmanni berast kvartanir vegna tafa á afgreiðslu mála og fyrir liggur að mál hefur verið til meðferðar í nokkurn tíma og sá sem í hlut á hefur ítrekað erindi sitt hefur, þrátt fyrir áðurnefnda reglu, í ákveðnum tilfellum verið farin sú leið að spyrjast fyrir hjá stjórnvaldinu um hvað líði afgreiðslu viðkomandi máls. Þetta hefur ekki síst verið gert til þess að greiða fyrir því að borgarinn fái sem fyrst úrlausn sinna mála enda hefur reyndin í flestum tilvikum verið sú að stjórnvaldið hefur brugðist við og afgreitt málið eða gefið skýringar á því hvað hafi valdið töfunum og hvenær ákvörðunar megi vænta í því. Í þessum tilvikum lýkur umboðsmaður athugun sinni á málinu.

Þegar niðurstaða liggur ekki fyrir hefur umboðsmaður hins vegar gætt varfærni við að taka afstöðu til þess hvort málsmeðferðartími geti talist óeðlilegur eða tafir við meðferð málsins óréttlættar í skilningi málshraðareglunnar, þ.e. að afgreiðsla málsins hafi dregist óhæfilega að teknu tilliti til sjónarmiða um atriði eins og umfang og eðli máls og almennt álag í starfsemi viðkomandi stjórnvalds.

Mér hafa undanfarin misseri borist allmargar kvartanir í tilefni tafa við meðferð mála hjá Útlendingastofnun. Hef ég í sumum tilfellum talið rétt að spyrjast fyrir hjá stofnuninni um hvað líði meðferð og afgreiðslu umræddra mála. Hefur stofnunin veitt mér þær skýringar að mikið álag sé í starfsemi hennar sökum mikils málafjölda og hafa tafir því verið almennar í langflestum tilfellum. Með vísan til þess hvernig málsmeðferð stofnunarinnar er lýst í kvörtuninni og að gættum þessum skýringum Útlendingastofnunar til mín í sams konar málum verður að ætla að hið sama eigi við í tilfelli umsóknar A, þ.e. að sá tími, sem meðferð þess hefur tekið, sé ekki bundinn við mál hennar heldur ráðist af almennum orsökum, einkum miklum málafjölda hjá Útlendingastofnun. Að þessu gættu tel ég að ef Útlendingastofnun yrði send fyrirspurn af minni hálfu um hvað liði meðferð og afgreiðslu umsóknarinnar, yrðu mér veitt sams konar svör og í öðrum kvörtunarmálum. Tel ég af þeim sökum og eftir að hafa kynnt mér kvörtunina ekki nægilegt tilefni til frekari athugunar á henni að svo stöddu og lýk því meðferð minni á málinu. Ég tek þó fram að ef A telur síðar, að undangengnum fyrirspurnum til Útlendingastofnunar um hvað líði afgreiðslu umsóknar þinnar, að meðferð málsins hafi dregist óhæfilega, getur hún eða þú fyrir hennar hönd leitað til mín á nýjan leik með kvörtun þar að lútandi.

Auk framangreinds lýk ég meðferð minni á kvörtun þinni með vísan til þess að hún og aðrar svipaðir kvartanir, sem beinast að Útlendingastofnun og lúta að tafsamri málsmeðferð stofnunarinnar, hafa orðið mér tilefni til að taka málsmeðferð Útlendingastofnunar að þessu leyti til athugunar að eigin frumkvæði, sbr. 5. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Hefur hjálagt bréf í samræmi við það verið sent Útlendingastofnun þar sem tilgreindra skýringa og upplýsinga er óskað. Ég tek þó fram að þessi ákvörðun mín um að taka málsefnið til athugunar að eigin frumkvæði hefur ekki áhrif á þá niðurstöðu að láta meðferð kvörtunar þinnar lokið.

Með vísan til þess, sem rakið er að framan, er athugun minni á kvörtun þinni lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.