A kvartaði yfir viðbrögðum heilbrigðisráðuneytisins við aðfinnslum hans í tilefni stjórnsýslu Sjúkratrygginga Íslands í tengslum við andlát dóttur hans á sjúkrahúsi erlendis. Laut kvörtunin meðal annars að mögulegum bótagreiðslum, eftirliti með veitingu heilbrigðisþjónustu og upplýsingagjöf.
Varðandi bótagreiðslur tók umboðsmaður fram að eðlilegt væri að dómstólar leystu úr slíku álitamáli en varðandi mögulegan rétt til frekari greiðslna til A frá Sjúkratryggingum var tekið fram að afstaða stofnunarinnar og eftir atvikum úrskurðarnefndar velferðarmála til slíks lægi ekki fyrir. Væru því ekki forsendur til að sá hluti kvörtunarinnar yrði tekinn til frekari meðferðar.
Taldi umboðsmaður ekki tilefni til að gera athugasemd við þá afstöðu heilbrigðisráðuneytisins að Sjúkratryggingar hefðu ekki vanrækt skyldu við að aðstoða A í samskiptum við erlend eftirlitsstjórnvöld. Í bréfi ráðuneytisins var í því samhengi meðal annars vísað til þess að ábyrgð á stofnun og eftirfylgni slíkra mála liggi hjá viðkomandi einstaklingi, líkt og eigi við hérlendis þegar kvartað er til landlæknis.
Að síðustu tók umboðsmaður fram að kvörtun A hefði orðið tilefni til að senda heilbrigðisráðherra bréf þar sem óskað var almennra upplýsinga um veitingu leiðbeininga þegar heilbrigðisþjónusta er veitt utan landsteinanna að frumkvæði íslenskra heilbrigðisyfirvalda.
Umboðsmaður lauk málunum með bréfi 30. september 2026.
Kvörtun
Vísað er til kvörtunar þinnar 17. október 2025 yfir viðbrögðum heilbrigðisráðuneytisins við aðfinnslum þínum í tilefni af stjórnsýslu Sjúkratrygginga Íslands í tengslum við andlát dóttur þinnar, B, á sjúkrahúsi í X en ráðuneytið gerði ekki athugasemdir við málsmeðferð Sjúkratrygginga. Í kvörtuninni kemur fram að þú óskir þess sérstaklega að umboðsmaður kanni hvort Sjúkratryggingar Íslands hafi fylgt lögum og reglum við val á erlendu sjúkrahúsi og með viðbrögðum sínum eftir atvikið, hvort brotið hafi verið gegn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 883/2004, um samræmingu almannatryggingakerfa, einkum ákvæðum 20. gr. reglugerðarinnar, hvort upplýsingaskylda gagnvart sjúklingi og aðstandendum hafi verið virt og hvort eftirlit með þjónustu hafi verið nægjanlegt og í samræmi við lög. Þá verði skoðað hvort bótagreiðslur til þín hafi verið í samræmi við réttindi aðstandenda, hvort þörf sé á að endurskoða reglur á þessu sviði og hvort hugsanlega hafi skapast nýr grunnur fyrir bótarétti.
Í tilefni af kvörtuninni var heilbrigðisráðuneytinu ritað bréf, 20. nóvember 2025, þar sem óskað var eftir gögnum málsins. Umbeðin gögn bárust 23. desember sama ár.
Um athugun umboðsmanns
Eftirlit umboðsmanns með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga beinist fyrst og fremst að því hvort málsmeðferð og ákvörðun stjórnvalds hafi verið í samræmi við lög, vandaða stjórnsýsluhætti og nánar tilgreindar siðareglur, sbr. 2. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþings. Í því felst að það er hlutverk umboðsmanns að fjalla um kvartanir yfir því að stjórnvöld hafi ekki farið að lögum eða fylgt vönduðum stjórnsýsluháttum með ákvörðunum sínum, athöfnum eða athafnaleysi, sem beinast að þeim er leggur kvörtun fram og varða beinlínis hagsmuni hans eða réttindi umfram aðra. Líkt og vikið hefur verið að í bréfum umboðsmanns 16. júlí 2024, í máli 12662/2024, og 7. ágúst 2025, í máli nr. 143/2025, vegna fyrri kvartana þinna, er það ennfremur skilyrði þess að umboðsmaður taki mál til athugunar að viðkomandi umkvörtunarefni hafi áður verið borið undir æðra stjórnvald, þar á meðal æðra stjórnvald sem fer með yfirstjórnunar- og eftirlitsheimildir á viðkomandi sviði, ef því er að skipta. Þá eru lög nr. 85/1997 byggð á þeirri forsendu að ákveðin verkaskipting sé milli umboðsmanns og dómstóla og að mál geti verið þannig vaxin að heppilegra sé að leyst verði úr þeim fyrir dómstólum, sbr. c-lið 2. mgr. 10. gr. laganna.
Í kvörtuninni kemur fram að þú telur íslensk stjórnvöld hafa brugðist skyldum sínum til að tryggja öryggi og hagsmuni dóttur þinnar og að upplýsa aðstandendur um áhættu og önnur úrræði þegar henni var vísað til meðferðar á sjúkrahúsi í X, þrátt fyrir að yfirvöldum hafi mátt vera kunnugt um hlutfall dauðsfalla sem rekja mætti til læknamistaka í landinu. Þá telur þú eftirliti íslenskra stjórnvalda með þeirri læknisþjónustu sem dóttir þín hafi notið hafa verið ábótavant. Virðist þú í því sambandi óska álits umboðsmanns á því hvort stofnast kunni að hafa til bótaábyrgðar íslenska ríkisins.
Niðurstaða um bótaábyrgð ríkisins gagnvart þér á framangreindum grundvelli ræðst meðal annars af sönnun um málsatvik þar sem reynst getur nauðsynlegt að afla ýmissa sönnunargagna, þar á meðal vitnaskýrslna, og meta sönnunargildi þeirra, en slíkt er ekki á færi umboðsmanns. Tel ég því að um sé að ræða álitamál sem eðlilegt er að dómstólar leysi úr fremur en umboðsmaður. Með því hef ég þó enga afstöðu tekið til þess hvort ástæða sé til að bera málið undir dómstóla.
Af fyrirliggjandi gögnum verður ráðið að Sjúkratryggingar hafi greitt kostnað við útför dóttur þinnar að því marki sem [...] yfirvöld bættu ekki þann kostnað. Fæ ég ekki séð að fengin hafi verið afstaða Sjúkratrygginga, né úrskurðarnefndar velferðarmála, til frekari réttar þíns á greiðslum frá Sjúkratryggingum vegna andlátsins. Eru því ekki forsendur til þess að ég láti uppi álit mitt á lögmæti ákvarðana stjórnvalda um rétt þinn sem aðstandanda til frekari greiðslna. Þá er það ekki hlutverk umboðsmanns að svara almennum spurningum um tiltekið málefni, svo sem hvort þörf sé á að endurskoða reglur. Umboðsmaður getur þó vakið athygli Alþingis og hlutaðeigandi ráðherra, verði hann þess var að meinbugir séu á gildandi lögum eða almennum stjórnvaldsfyrirmælum, sbr. 11. gr. laga nr. 85/1997.
Að virtu framangreindu tel ég aðeins geta komið til skoðunar umboðsmanns nú sá þáttur kvörtunar þinnar er beinist að athöfnum, og ætluðu athafnaleysi, Sjúkratrygginga vegna samskipta við [...] stjórnvöld í kjölfar andláts dóttur þinnar.
Samskipti Sjúkratrygginga og bréf heilbrigðisráðuneytisins 17. september 2025
Fyrir liggur að í kjölfar bréfa umboðsmanns 16. júlí 2024 og 7. ágúst 2025 leitaðir þú til heilbrigðisráðuneytisins með kvörtun sem beindist að ófullnægjandi aðstoð frá íslenskum heilbrigðisyfirvöldum vegna samskipta við [...] stjórnvöld eftir andlát dóttur þinnar. Í erindinu var farið fram á að ráðuneytið hlutaðist til um að Sjúkratryggingar önnuðust nauðsynleg samskipti við [...] stjórnvöld vegna máls dóttur þinnar.
Í tilefni erindisins aflaði heilbrigðisráðuneytið umsagnar Sjúkratrygginga um málið og upplýsinga um greiddar bætur. Þá liggur fyrir fundargerð fundar sem þú og móðir dóttur þinnar áttuð með meðferðarlækni hennar og fulltrúum Sjúkratrygginga 17. september 2024 en þar kemur meðal annars fram að stofnunin kæmi til með að hafa samband við sjúkrahúsið til að fá upplýsingar um tilkynningu málsins til [...] eftirlitsstofnunarinnar Y vegna málsins. Líkt og greinir í tölvupósti stofnunarinnar sama dag aflaði stofnunin þeirra upplýsinga og kom þeim áleiðis til þín auk annarra. Í bréfi heilbrigðisráðuneytisins 17. október 2025 kemur fram að ekki verði annað ráðið, að mati ráðuneytisins, en að Sjúkratryggingar hafi veitt þær leiðbeiningar og aðstoð sem stofnuninni bar að veita samkvæmt lögum. Í tengslum við umsókn um læknismeðferð erlendis hafi meðferðarlæknir dóttur þinnar átt í samskiptum við lækna á sjúkrahúsi í Z í X sem kæmu til með að taka meðferðina að sér en í þessu sambandi kom fram í umsögn Sjúkratryggingar til ráðuneytisins að stofnunin hefði ekki talið rétt að gera breytingu á samningum við umrætt sjúkrahús. Er tekið fram í bréfi ráðuneytisins að Sjúkratryggingum beri ekki að hafa sérstaka aðkomu að eða annast samskipti við eftirlitsaðila erlendis þegar grunur leiki á að mistök hafi verið gerð við veitingu heilbrigðisþjónustu, þótt stofnunin hefði greitt fyrir þjónustuna. Ábyrgð á stofnun slíkra mála og eftirfylgni þeirra liggi hjá kvartanda, rétt eins og eigi við um kvartanir hér á landi til embættis landlæknis vegna meintra mistaka eða vanrækslu við veitingu heilbrigðisþjónustu. Taldi ráðuneytið því ekki ástæðu til að gera athugasemdir við meðferð máls þíns hjá Sjúkratryggingum.
Þá fæ ég hvorki séð að lög né reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 883/2004, þar á meðal 20. gr. hennar, leggi á Sjúkratryggingar skyldu til aðstoðar við aðstandendur tryggðs einstaklings í samskiptum við stjórnvöld í öðru aðildarríki við andlát í tengslum við læknismeðferð. Að öllu framangreindu virtu og að teknu tilliti til gagna málsins að öðru leyti tel ég ekki tilefni til athugasemda við niðurstöðu heilbrigðisráðuneytisins um skyldur Sjúkratrygginga gagnvart þér.
Að síðustu tel ég rétt að upplýsa þig um að kvörtun þín hefur orðið mér tilefni til að senda heilbrigðisráðherra hjálagt bréf þar sem óskað er upplýsinga um þær leiðbeiningar, sem sjúklingum og eftir atvikum aðstandendum þeirra kunna að vera veittar þegar heilbrigðisþjónusta er veitt utan landsteinanna að frumkvæði íslenskra heilbrigðisyfirvalda. Ég tek þó fram að sú ákvörðun mín að taka framangreint til athugunar hefur ekki áhrif á niðurstöðu mína í máli þínu.
Niðurstaða
Með vísan til framangreinds er athugun minni á kvörtuninn lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.