Kvartað var yfir málsmeðferð byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar vegna lokaúttektar á tiltekinni fasteign.
Þar sem málið var enn til meðferðar í stjórnsýslunni voru ekki skilyrði til að umboðsmaður fjallaði um það.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 25. september 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar til umboðsmanns Alþingis 19. október 2025 sem beinist að byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar og lýtur að málsmeðferð vegna lokaúttektar á fasteigninni [...]. Kvörtuninni fylgdu meðal annars ítarleg samskipti við byggingarfulltrúa. Á meðan málið hefur verið til athugunar hjá umboðsmanni hafa borist frekari gögn frá þér 19. desember 2025, svo og 8. febrúar, 11. mars og 17. ágúst sl., það er ýmis samskipti þín, byggingarfulltrúa og X ehf. um frágang fasteignarinnar vegna lokaúttektar.
Í 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis er fjallað um skilyrði þess að kvörtun verði tekin til meðferðar af hálfu umboðsmanns. Þar segir í 3. mgr. að megi skjóta máli til æðra stjórnvalds sé ekki unnt að kvarta til umboðsmanns fyrr en æðra stjórnvald hefur fellt úrskurð sinn í málinu. Að baki þessu ákvæði býr það sjónarmið að stjórnvöld skulu fyrst fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir, sem hugsanlega eru rangar, áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra. Af framangreindum ákvæðum leiðir meðal annars að umboðsmaður fjallar almennt ekki um mál nema stjórnvöldum hafi fyrst verið gefinn kostur á að taka afstöðu til þeirra eða á meðan það er enn til meðferðar hjá stjórnvöldum.
Meðal þeirra gagna sem borist hafa umboðsmanni í tilefni kvörtunar þinnar eru samskipti úttektarfulltrúa hjá byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar í apríl sl. þar sem óskað er álits Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar á handriði fasteignarinnar, í maí sl. þar sem byggingarfulltrúi óskaði eftir upplýsingum frá X ehf. um stöðu úrbóta en þeim samskiptum fylgdu jafnframt afrit samskipta félagsins við byggingarfulltrúa varðandi lok tiltekinna verkþátta, þ. á m. varðandi gólfefni á sorpgeymslu og enn fremur samskipti í júní og júlí sl. varðandi frágang sorpgeymslu.
Gögn sem fylgdu kvörtun þinni, svo og þau sem borist hafa í tengslum við hana, bera ekki annað með sér en að mál þitt sé í farvegi og að byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar hafi haldið þér upplýstum um stöðu mála. Ég bendi þér á að þú kannt að geta beint kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 59. gr. laga nr. 160/2010, um mannvirki, eftir að mál þitt hefur verið til lykta leitt hjá byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar, en kærufrestur er einn mánuður frá því kæranda var kunnugt eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Ef þú, eða aðrir íbúar í húsinu, ert ósáttur að fengnum úrskurði nefndarinnar um slíka kæru getur þú leitað til umboðsmanns á nýjan leik með kvörtun þar að lútandi innan árs frá þeim úrskurði.
Með vísan til framangreinds er umfjöllun minni um kvörtun þína lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997. Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem orðið hafa á athugun minni á kvörtuninni.