A kvartaði yfir töfum á svörum við fyrirspurnum sem sendar höfðu verið lögreglustjóranum X.
Í svari lögreglustjóra við fyrirspurn umboðsmanns um málið kom fram að búið væri að svara A. Því taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 25. september 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar frá 14. ágúst sl. sem beinist að lögreglustjóranum X og lýtur að því að ekki hafi verið brugðist við fyrirspurnum þínum 30. júlí og 11. ágúst sl.
Í tilefni af kvörtuninni var lögreglustjóranum X ritað bréf 8. september sl. og spurt var hvað liði meðferð og afgreiðslu erindanna. Í svari lögreglustjóra 22. september sl. segir að þér hafi verið svarað 19. ágúst sl. og fylgdi afrit svarsins svari lögreglustjóra.
Þar sem kvörtunin lýtur að töfum á afgreiðslu erindis en upplýsingar hafa borist um að því hafi verið svarað, tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni. Með hliðsjón af framangreindu lýk ég meðferð minni á málinu með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.