Erlendir ríkisborgarar. Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 419/2026)

A kvartaði yfir töfum á afgreiðslu umsóknar hans til Útlendingastofnunar, en rekja mátti tafirnar til þess að beðið væri niðurstöðu áreiðanleikakönnunar á sakavottorði hans hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.

Af hálfu umboðsmanns var vísað til þess að í þeim tilvikum þar sem óskað hefði verið upplýsinga um ástæður tafa í sambærilegum málum hefði komið í ljósi að þær væru af almennum toga en ekki bundnar við einstök mál sérstaklega. Taldi umboðsmaður því ekki tilefni til að taka kvörtunina til frekari athugunar. Hafði umboðsmaður þar jafnframt í huga að tafir við málsmeðferð Útlendingastofnunar vegna biðar eftir niðurstöðum áreiðanleikakannana hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum hefðu þegar verið teknar til athugunar að eigin frumkvæði.  

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 10. september 2026.

   

   

Vísað er til kvörtunar þinnar 30. júní sl. sem beinist að Útlendingastofnun og lýtur að töfum á afgreiðslu umsóknar þinnar um íslenskan ríkisborgararétt.

Leitaðir þú til umboðsmanns 5. júlí 2025 vegna tafa á afgreiðslu sama máls. Í svörum Útlendingastofnunar í tilefni af fyrirspurn umboðsmanns um hvað liði meðferð og afgreiðslu málsins kom meðal annars fram að vegna gruns um fölsun á sakavottorði þínu frá X hafi þótt nauðsynlegt að senda það í áreiðanleikakönnun hjá skilríkjarannsóknardeild lögreglunnar á Suðurnesjum. Með hliðsjón af þeim upplýsingum og skýringum sem Útlendingastofnun veitti í málinu varð ekki annað ráðið en að málið væri í vinnslu og að tafir á afgreiðslu þess væru af almennum toga og ekki bundnar við mál þitt sérstaklega. Lauk umboðsmaður því athugun sinni á málinu með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997. Í kvörtun þinni nú vísar þú til þess að þú hafir sent Útlendingastofnun afrit af tveimur nýjum sakavottorðum, en stofnunin hafi svarað því þannig að þó að nýtt sakavottorð bærist yrði umsóknin ekki unnin frekar fyrr en sakavottorðið sem sent var í áreiðanleikakönnun væri komið aftur til stofnunarinnar. Vísar þú einnig til þess að einu svörin sem þú hafir fengið frá Útlendingastofnun varðandi meðferð máls þíns séu þau að málið sé enn hjá lögreglu.

Í upphafi tel ég rétt að vekja athygli á því að í lögum nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er ekki gert ráð fyrir því að umboðsmaður hafi afskipti af máli fyrr en stjórnvöld, þar með talið æðra stjórnvald, hafa lokið umfjöllun sinni um það, sbr. 3. mgr. 6. gr. laganna. Af því leiðir meðal annars að almennt verður mál ekki tekið til meðferðar af hálfu umboðsmanns á grundvelli kvörtunar á meðan það er enn til meðferðar hjá stjórnvöldum.

Þegar umboðsmanni berast kvartanir vegna tafa á afgreiðslu mála og fyrir liggur að málið hefur verið til meðferðar í nokkurn tíma hefur almennt, þrátt fyrir áðurnefnda reglu um að máli skuli hafa verið lokið innan stjórnsýslunnar, verið farin sú leið að spyrjast fyrir um hjá stjórnvaldinu hvað líði meðferð og afgreiðslu viðkomandi máls. Þetta hefur ekki síst verið gert til þess að greiða fyrir því að borgararnir fái sem fyrst afgreiðslu mála sinna enda hefur reyndin verið sú að stjórnvaldið hefur brugðist við og afgreitt málið eða gefið skýringar á því hvað valdi töfunum og hvenær ráðgert sé að afgreiða málið. Í þessum tilvikum lýkur umboðsmaður athugun sinni á málinu. Umboðsmaður hefur hins vegar gætt varúðar gagnvart því að fjalla um og taka afstöðu til þess hvort málsmeðferð stjórnvalds hafi brotið í bága við málshraðareglu áður en málið hefur verið til lykta leitt.

Í þessu sambandi bendi ég á að við meðferð umboðsmanns á öðrum kvörtunum vegna tafa á afgreiðslu beiðna um áreiðanleikakönnun hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum hefur komið í ljós að afgreiðslutími þeirra hefur lengst undanfarið vegna álags og fjölgunar slíkra beiðna, sbr. til dæmis bréf umboðsmanns Alþingis 12. nóvember 2025 í máli nr. 431/2025, sem birt er á vefsíðu umboðsmanns, www.umbodsmadur.is. Má því vera ljóst að þær tafir sem orðið hafa á afgreiðslu umsóknar þinnar og kvörtunin lýtur að eru almennar en ekki bundnar við mál þitt sérstaklega.

Að þessu gættu, og eftir að hafa kynnt mér kvörtunina, tel ég ekki tilefni til að aðhafast sérstaklega vegna hennar. Í þessu sambandi bendi ég jafnframt á að ég hef þegar tekið tafir við áreiðanleikakannanir hjá lögreglu til athugunar að eigin frumkvæði og óskað upplýsinga frá dómsmálaráðherra af þessu tilefni, sbr. tilkynningu þar um á vefsíðu umboðsmanns 11. mars sl.

Með vísan til framangreinds tel ég ekki tilefni til að taka kvörtunina til nánari athugunar og læt ég því umfjöllun minni um hana lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.