A kvartaði yfir því sem hann taldi vera vanrækslu og aðgerðarleysi af hálfu tilgreindra stofnana og aðila í tengslum við brottflutning barnsmóður hans með börn þeirra frá Íslandi án samþykkis hans. Beindist kvörtunin nánar tiltekið að grunnskóla, þar sem börnin stunduðu nám, félagsþjónustu sveitarfélagsins X, nafngreindum lögmanni og loks lögreglu. Laut kvörtunin að aðgerðarleysi þessara aðila sem hafi vitað af fyrirhuguðum flutningi barnsmóðurinnar en vanrækt að upplýsa A eða aðhafast að öðru leyti.
Þar sem ekki varð ráðið að í málinu lægi fyrir úrskurður sýslumanns um heimild til utanfarar með börnin eða að leitað hefði verið til dómsmálaráðuneytisins vegna þess taldi umboðsmaður að ekki væru skilyrði til þess að taka kvörtunina til frekari athugunar. Þá taldi umboðsmaður rétt að aðfinnslur A við önnur stjórnvöld yrðu bornar upp við nefnd um eftirlit með lögreglu og sveitarfélagið X áður en kvartað væri af sama tilefni til umboðsmanns. Loks tók umboðsmaður fram að starfssvið hennar næði ekki til starfa lögmanna.
Umboðsmaður lauk málunum með bréfi 10. september 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar 25. ágúst sl. yfir því sem þú telur vera vanrækslu og aðgerðarleysi af hálfu tilgreindra stofnana og aðila í tengslum við brottflutning barnsmóður þinnar með börn ykkar frá Íslandi án samþykkis þíns. Beinist kvörtunin nánar tiltekið að grunnskóla X, þar sem börnin munu hafa stundað nám, félagsþjónustu sama sveitarfélags, nafngreindum lögmanni, sem mun hafa starfað í þínu umboði, og loks lögreglu. Lýtur kvörtunin að aðgerðarleysi þessara aðila sem hafi vitað af fyrirhuguðum flutningi barnsmóður þinnar en vanrækt að upplýsa þig eða aðhafast að öðru leyti. Þú hefur áður leitað til mín vegna mála sem varða velferð barna þinna og samskipti við móður þeirra, sbr. mál nr. 263/2025 sem lokið var með bréfi 19. september 2025. Mér er því kunnugt um að þú hefur átt í ýmsum samskiptum við stjórnvöld því tengdu.
Í 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, segir að ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds er ekki unnt að kvarta til umboðsmanns fyrr en það hefur fellt úrskurð sinn í málinu. Byggist þetta ákvæði á því sjónarmiði að stjórnvöld skuli sjálf fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir eða annað í störfum sínum sem ekki er í samræmi við lög áður en leitað er með kvörtun til aðila utan stjórnkerfis þeirra, eins og umboðsmanns Alþingis. Með hliðsjón af þessum sjónarmiðum hefur í framkvæmd umboðsmanns verið litið svo á að þegar með lögum hefur verið komið á fót sérstökum eftirlitsaðila innan stjórnsýslunnar til að fjalla um tilteknar kvartanir, sé rétt að slík leið hafi verið farin áður en kvörtun vegna sama máls kemur til umfjöllunar hjá umboðsmanni.
Ástæða þess að þetta er tekið fram er sú að óheimilt er að fara með barn úr landi nema báðir forsjáraðilar þess samþykki ferðalagið. Greini foreldra, sem fara sameiginlega með forsjá barns, á um utanlandsferð þess úrskurðar sýslumaður, að kröfu foreldris um rétt til að fara í ferðalag með barn úr landi og skal þá meðal annars líta til tilgangs ferðar, tímalengdar og áhrifa á umgengni, sbr. 1. og 2. mgr. 51. gr. a. barnalaga nr. 76/2003. Unnt er að kæra úrskurð sýslumanns til dómsmálaráðherra innan tveggja mánaða frá dagsetningu hans, sbr. 1. mgr. 78. gr. laganna.
Því til viðbótar fer dómsmálaráðuneytið jafnframt með hlutverk móttökustjórnvalds samkvæmt 5. gr. laga nr. 160/1995, um viðurkenningu og fullnustu erlendra ákvarðana um forsjá barna, afhendingu brottnuminna barna o.fl., en í því felst meðal annars að eiga samvinnu við móttökustjórnvöld í öðrum ríkjum sem eru aðilar að svonefndum Evrópu- og Haagsamningum, sem ætlað er að tryggja hagsmuni barns sem hefur verið flutt með ólögmætum hætti úr einu samningsríki til annars, sbr. 2. töluliður greinarinnar. Leiðbeinir ráðuneytið þeim sem eru aðilar að slíku máli um stöðu þeirra að öðru leyti.
Ástæða þess að þetta er tekið fram er sú að af kvörtuninni, en henni fylgdu engin gögn, verður ráðið að í málinu liggi hvorki fyrir úrskurðir sýslumanns eða dómsmálaráðuneytisins um heimild barnsmóður þinnar til að fara með börnin úr landi né að leitað hafi verið til ráðuneytisins á grundvelli hlutverks þess samkvæmt lögum nr. 160/1995. Þá verður hvað lögreglu snertir ekki ráðið að leitað hafi verið til nefndar um eftirlit með lögreglu sem starfar á grundvelli 35. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 en hlutverk hennar var rakið í áðurnefndu bréfi mínu til þín 19. september 2025. Hvað snertir athugasemdir þínar við starfshætti þess grunnskóla X og félagsþjónustu sveitarfélagsins bendi ég á að teljir þú málsmeðferð starfsmanns þessara aðila hafa verið ábótavant er þér jafnframt unnt að leita til yfirmanna umrædds starfsmanns með því að beina erindi til skrifstofu sveitarfélagsins. Þar sem ekki verður séð að þess hafi verið freistað að leggja málið í slíkan farveg, tel ég ekki uppfyllt skilyrði til að taka þessa kvörtun til frekari meðferðar og læt skoðun minni á henni lokið af þeim sökum.
Loks skal tekið fram að samkvæmt 1. og 2. mgr. 3. gr. laga nr. 85/1997 tekur starfssvið umboðsmanns til stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga svo og einkaaðila að því leyti sem þeim hefur að lögum verið fengið opinbert vald til að taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Af þessu leiðir að ekki er unnt að beina kvörtun til umboðsmanns yfir störfum lögmanna. Ég bendi þó á að samkvæmt 1. mgr. 27. gr. laga nr. 77/1998, um lögmenn, getur sá, sem telur að lögmaður hafi í starfi sínu gera á sinn hlut með háttsemi sem stríði gegn lögum eða siðareglum lögmanna, lagt fyrir úrskurðarnefnd lögmanna kvörtun á hendur lögmanninum. Getur nefndin fundið að vinnubrögðum eða háttsemi lögmanns eða veitt honum áminningu og ef sakir eru miklar lagt til að hann verði sviptur réttindum sínum.
Með hliðsjón af framangreindu og með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997 læt ég umfjöllun minni um kvörtun þína lokið. Fari svo að þú leitir með mál þitt til framangreindra stjórnvalda getur þú leitað til mín á nýjan leik að fenginni niðurstöðu þeirra, teljir þú tilefni til.