Aðgangur að gögnum og upplýsingum. Ekki ástæða til aðgerða. Lagasetning Alþingis. Utan valdssviðs.

(Mál nr. 279/2026)

A kvartaði yfir málsmeðferð og niðurstöðu úrskurðarnefndar um upplýsingamál, sem staðfest hafði synjun embættis landlæknis á beiðni A um aðgang að gögnum úr gagnagrunnum embættisins.  

Umboðsmaður taldi að ekki væru forsendur til að gera athugasemdir við meðferð málsins hjá nefndinni og þá niðurstöðu hennar að staðfesta afgreiðslu embættis landlæknis á beiðni A um aðgang að upplýsingum.

Í kvörtuninni fólst jafnframt beiðni um að sóttvarnalög yrðu tekin til almennrar athugunar. Þar sem það er almennt ekki á verksviði umboðsmanns að taka afstöðu til þess hvernig til hefur tekist með löggjöf sem Alþingi hefur sett taldi umboðsmaður ekki skilyrði til að taka þann þátt kvörtunarinnar til frekari meðferðar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 17. júlí 2026.

   

  

I

Vísað er til kvörtunar þinnar sem barst 26. apríl sl., yfir úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál 12. febrúar sl. í máli nr. [...] þar sem afgreiðsla embættis landlæknis á beiðni þinni um aðgang að gögnum úr gagnagrunnum embættisins var staðfest. Í kvörtuninni gerir þú einkum athugasemdir við meðferð málsins hjá nefndinni, þá sérstaklega að nefndin hafi ekki rannsakað málið með fullnægjandi hætti. Er þannig byggt á því í kvörtun að nefndin hafi ekki rannsakað hvort umbeðnar upplýsingar væru í reynd fyrirliggjandi hjá embætti landlæknis.

Í tilefni af kvörtuninni var nefndinni ritað bréf 29. maí sl. þar sem óskað var eftir gögnum málsins. Umbeðin gögn bárust 9. júní sl.

  

II

Í 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 kemur fram sú meginregla að skylt sé, ef þess er óskað, að veita almenningi aðgang að fyrirliggjandi gögnum sem varða tiltekið mál, með þeim takmörkunum sem greinir í 6. til 10. gr. laganna. Sama gildi þegar óskað sé aðgangs að tilteknum fyrirliggjandi gögnum. Ekki sé þó skylt að útbúa ný skjöl eða önnur gögn í ríkari mæli en leiðir af 3. mgr., en þar er fjallað um skyldu aðila, sem falla undir gildissvið laganna, til að veita aðgang að öðrum hlutum gagna en falla undir takmarkanir á upplýsingarétti. Í frumvarpi því er varð að lögunum segir að það sé skilyrði að gagn sé fyrirliggjandi hjá þeim sem fær beiðni um aðgang til afgreiðslu. Réttur til aðgangs að gögnum nái þannig aðeins til þeirra gagna sem til eru og fyrir liggja á þeim tímapunkti þegar beiðni um aðgang er sett fram (þskj. 223 á 141. löggjafarþingi 2012-2013, bls. 41-42).

Í fyrrgreindum úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál í máli þínu er ákvæði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 140/2012 meðal annars rakið. Um aðgang að upplýsingum úr gagnagrunnum tiltekur þá nefndin sérstaklega eftirfarandi:

Nefndin hefur í úrskurðarframkvæmd sinni lagt til grundvallar að upplýsingar sem varðveittar eru í gagnagrunnum geti talist fyrirliggjandi enda krefjist afhending þeirra óverulegrar fyrirhafnar, svo sem útdráttar eða vistunar gagna í þeirri mynd sem þau liggja fyrir í gagnagrunninum. Slík ályktun byggist þó á heildstæðu mati aðstæðna hverju sinni og eðli þeirrar vinnu sem afhending gagnanna felur í sér.

Ljóst er af úrskurðinum og gögnum máls að í tilefni af kæru þinni átti nefndin í samskiptum við embætti landlæknis. Gáfu svör landlæknis til nefndarinnar skýrlega til kynna þá afstöðu embættisins að beiðni þín fæli í sér að embætti landlæknis þyrfti að afkóða gögn úr nokkrum gagnagrunnum og keyra gagnagrunna saman. Að því búnu þyrfti að dulkóða gögnin. Í ljósi þeirra svara embættisins taldi nefndin sig ekki hafa forsendur til að draga í efa að umbeðin gögn lægju ekki fyrir hjá embætti landlæknis.

Eftir að hafa kynnt mér úrskurð nefndarinnar og gögn málsins, þar á meðal svör embættis landlæknis til nefndarinnar, tel ég að ekki séu forsendur fyrir mig til að gera athugasemdir við meðferð málsins og þá niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar að staðfesta afgreiðslu embættis landlæknis á beiðni þinni um aðgang að upplýsingum. Ég fæ enda ekki annað séð en að nefndin hafi lagt fullnægjandi mat á atvik málsins, það er hvort um fyrirliggjandi gögn væri að ræða í skilningi 1. mgr. 5. gr. laga nr. 140/2012, á grundvelli þeirra svara og forsenda sem lágu fyrir og að málið hafi þannig verið rannsakað með fullnægjandi hætti.

III

Kvörtun þín og meðfylgjandi gögn gefa jafnframt til kynna að þú óskir þess að umboðsmaður taki sóttvarnalög nr. 40/2026, sem samþykkt voru á Alþingi 21. apríl sl., til almennrar athugunar áður en þau öðlast gildi 1. september nk.

Af því tilefni bendi ég á að starfssvið umboðsmanns, sbr. a-lið 4. mgr. 3. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, tekur ekki til starfa Alþingis. Það er því almennt ekki á verksviði umboðsmanns Alþingis að taka afstöðu til þess hvernig til hefur tekist með löggjöf sem Alþingi hefur sett. Með 11. gr. laga nr. 85/1997 er umboðsmanni þó veitt heimild til að tilkynna Alþingi, hlutaðeigandi ráðherra eða sveitarstjórn ef hann verður var við meinbugi á gildandi lögum eða almennum stjórnvaldsfyrirmælum í störfum sínum. Í lögum er hins vegar ekki gert ráð fyrir því að kvörtun verði borin fram við umboðsmann á þessum grundvelli, þótt vitanlega sé öllum frjálst að koma á framfæri við umboðsmann ábendingum um slík atriði.

Ég bendi einnig á að til þess að kvörtun verði borin fram við umboðsmann verður almennt að liggja fyrir ákveðin ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi stjórnvalds sem beinist sérstaklega að þeim sem leggur fram kvörtun eða varðar beinlínis hagsmuni hans eða réttindi umfram aðra, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 85/1997.

Af kvörtun þinni, eins og hún er sett fram, verður sem fyrr segir ekki annað ráðið en að hún beinist með almennum hætti að fyrrgreindum lögum nr. 40/2026, þar á meðal hvort tiltekin ákvæði laganna brjóti í bága við stjórnarskrá. Ég tel því í ljósi framangreinds að ekki sé skilyrði að lögum til að ég taki þennan þátt kvörtunarinnar til frekari meðferðar.

  

IV

Með vísan til framangreinds lýk ég athugun minni á kvörtuninni, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.