A leitaði til umboðsmanns Alþingis með kvörtun sem beindist að úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála.
Af gögnum málsins varð ekki annað ráðið en að úrskurður nefndarinnar sem lá kvörtuninni til grundvallar hefði verið A í vil. Umboðsmaður rakti af því tilefni hlutverk hennar eins og það er afmarkað í lögum nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis og tók fram að við þær aðstæður væri almennt ekki tilefni fyrir umboðsmann að aðhafast.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 30. júlí 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar 19. maí sl. sem beinist að X og úrskurðarnefnd velferðarmála og lýtur að úrskurði nefndarinnar 7. maí sl. í máli nr. [...], á þann hátt sem nánar greinir hér að neðan.
Í kvörtuninni er því lýst að þú hafir leitað til mín 9. júlí 2025 með kvörtun sem laut meðal annars að töfum á afgreiðslu X á umsókn þinni um fjárhagsaðstoð. Við athugun mína á því máli tók sveitarfélagið ákvörðun um umsóknina og var því ekki tilefni til frekari athugunar af minni hálfu vegna kvörtunarinnar. Umfjöllun minni um hana var því lokið með bréfi til þín 9. október 2025. Þar var þér meðal annars leiðbeint um að þú gætir borið athugasemdir þínar um sérstakt hæfi starfsmanna sveitarfélagsins undir úrskurðarnefnd velferðarmála, færir þú þá leið að beina kæru til nefndarinnar vegna ákvörðunar sveitarfélagsins.
Nú liggur fyrir að umsókn þinni um fjárhagsaðstoð var synjað af sveitarfélaginu með vísan til þess að þú hefðir ekki mætt í boðuð viðtöl og því hefði starfsmönnum ekki tekist að fara yfir umsóknina og meta hana. Þá hefðir þú ekki fylgt þeim skilyrðum sem fylgdu umsókn um fjárhagsaðstoð samkvæmt tilteknum reglum sveitarfélagsins. Leitaðir þú til úrskurðarnefndar velferðarmála 29. janúar sl. með kæru yfir ákvörðuninni. Óskaðir þú þess að hún yrði felld úr gildi og málinu vísað aftur til nýrrar meðferðar og ákvörðunar. Með úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála 7. maí sl. var fallist á þá ósk þína þar sem felld var úr gildi ákvörðun X um að synja umsókn þinni. Málinu var samkvæmt því vísað til nýrrar meðferðar sveitarfélagsins. Ekki liggur annað fyrir en að málið sé nú í þeim farvegi.
Ég fæ ráðið að þú sért nú öðru fremur ósátt við að úrskurðarnefnd velferðarmála hafi ekki tekið afstöðu til þeirra athugasemda sem þú gerðir um hæfi starfsmanna X til að afgreiða umsókn þína um fjárhagsaðstoð. Þannig kemur meðal annars fram í kvörtuninni að þú sért ósátt við að grundvöllur þess að úrskurðarnefndin féllst á kröfu þína um ógildingu ákvörðunar X , hafi ekki verið ætlað vanhæfi tiltekinna starfsmanna sveitarfélagsins.
Svo sem að framan er rakið verður séð að úrskurðarnefnd velferðarmála hafi í málinu fallist á kröfu þína um ógildingu ákvörðunar X. Niðurstaðan var því í samræmi við óskir þínar þótt í kvörtuninni séu sem fyrr segir gerðar athugasemdir við starfshætti úrskurðarnefndarinnar að því leyti að hún hafi ekki byggt niðurstöðu sína á þeim grundvelli sem þú hefðir kosið eða fjallað að öðru leyti um sérstakt hæfi starfsmanna sveitarfélagsins.
Í ljósi framangreinds tel ég rétt að fjalla um hlutverk umboðsmanns Alþingis og hverjar geta orðið lyktir mála hjá embættinu. Um þessi atriði eru ákvæði í lögum nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. laganna er hlutverk umboðsmanns að hafa í umboði Alþingis eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga á þann hátt sem nánar greinir í lögunum og tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum landsins. Skal hann gæta þess að jafnræði sé í heiðri haft í stjórnsýslunni og að hún fari að öðru leyti fram í samræmi við lög, vandaða stjórnsýsluhætti og þær siðareglur sem tilgreindar eru í lögunum. Í 2. mgr. 4. gr. er svo kveðið á um að hver sá sem telur sig hafa verið beittan rangsleitni af hálfu einhvers þess aðila, sem fellur undir starfssvið umboðsmanns, geti kvartað af því tilefni til umboðsmanns.
Í 10. gr. laga nr. 85/1997 er fjallað um lyktir máls. Í 1. mgr. ákvæðisins kemur fram að telji umboðsmaður þegar í upphafi að kvörtun gefi ekki nægilegt tilefni til nánari athugunar eða uppfylli ekki skilyrði laganna til frekari meðferðar skuli hann tilkynna þeim sem kvartað hefur þá niðurstöðu. Í b-lið 2. mgr. 10. gr. segir að hafi umboðsmaður tekið mál til nánari athugunar geti hann látið í ljós álit sitt á því hvort athöfn stjórnvalds brjóti í bága við lög eða hvort annars hafi verið brotið gegn vönduðum stjórnsýsluháttum eða þeim siðareglum sem nánar eru tilgreindar í lögunum. Þá segir að sæti athafnir stjórnvalds aðfinnslum eða gagnrýni umboðsmanns geti hann jafnframt beint tilmælum til stjórnvalds um úrbætur. Í c-lið 2. mgr. 10. gr. kemur svo fram að varði kvörtun réttarágreining sem á undir dómstóla og eðlilegt er að þeir leysi úr geti umboðsmaður lokið máli með ábendingu um það.
Á grundvelli 10. gr. laga nr. 85/1997, sbr. einnig 5. gr. sömu laga, hefur umboðsmaður Alþingis svigrúm til að ákveða hvaða mál hann telur tilefni til að fjalla nánar um og þá með hvaða hætti, meðal annars með tilliti til mikilvægis þeirra, fjölda mála og þeirra takmörkuðu fjárveitinga og mannafla sem umboðsmaður hefur til umráða. Hér kann einnig að skipta máli hvort og þá hvaða möguleikar eru á að umboðsmaður geti beint tilmælum til stjórnvalds sem kunna að hafa þýðingu fyrir réttarstöðu þess sem hefur kvartað til umboðsmanns. Ef stjórnvald hefur fallist á afstöðu þess sem kvartar til umboðsmanns Alþingis er að jafnaði ekki tilefni fyrir umboðsmann að taka málsmeðferð stjórnvaldsins til sérstakrar athugunar þótt undantekningar geti verið á því.
Með vísan til þess sem er rakið að framan og þar sem ekki verður annað ráðið af gögnum málsins en að niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. [...] frá 7. maí sl. hafi sem fyrr segir verið í samræmi við óskir þínar tel ég ekki nægt tilefni til að taka kvörtunina til frekari meðferðar að þessu leyti.
Fari svo að þú leitir að nýju til úrskurðarnefndar velferðarmála að fenginni niðurstöðu X, er þér fært að kvarta yfir niðurstöðu nefndarinnar, teljir þú tilefni til.
Með hliðsjón af framangreindu, og með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, lýk ég hér með athugun minni á málinu.