Skipulags- og byggingarmál. Strandsvæðisskipulag. Ekki aðild.

(Mál nr. 343/2026)

A kvartaði yfir töfum á viðbrögðum húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar við erindi og því að ekki hefði orðið við ítrekuðum beiðnum hennar um fund við félags- og húsnæðismálaráðherra. Þá var kvartað yfir því að ráðherra hefði ekki skipað svæðisráð um strandsvæðisskipulag Austfjarða í samræmi við lög um skipulag haf- og strandsvæða. Loks var kvartað yfir stjórnsýslu húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar í tengslum við aðildarkröfu að stjórnsýslumáli er varðaði umsókn um byggingarleyfi fyrir mannvirkjum til sjókvíaeldis í Seyðisfirði.

Hvað varðaði tafir á viðbrögðum húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar var vísað til þess að A hefði verið í talsverðum samskiptum við stofnunina um sama mál og erindið varðaði og fengið nokkur svör. Þá upplýsti A um að umbeðinn fundur hefði farið fram. Með hliðsjón af þessu taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af þessum hluta kvörtunarinnar.

Að því er varðaði athugasemdir við það að ráðherra hefði ekki skipað svæðisráðið var vísað til þess að lög nr. 88/2018 gerðu ekki ráð fyrir aðkomu eða aðild þeirra er benda á annmarka að þessu leyti og því væru ekki uppfyllt skilyrði til þess að kvörtunarefnið yrði tekið til frekari meðferðar á þessum grundvelli.

Loks taldi umboðsmaður að ekki yrði annað ráðið af kvörtuninni en að mál varðandi aðildarkröfu væri enn til meðferðar hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun  og því væru ekki uppfyllt skilyrði til þess að kvörtunin yrði tekin til frekari meðferðar að svo stöddu.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréf 31. júlí 2026.

   

   

I

Vísað er til kvörtunar þinnar f.h. hóps [...] við Seyðisfjörð 26. maí 2026 sem beinist að Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun og félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Lýtur kvörtunin í fyrsta lagi að töfum á viðbrögðum Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar við erindi þínu 7. nóvember 2025 og því að ekki hafi orðið við ítrekuðum beiðnum þínum um fund með ráðherra. Lýtur kvörtunin í öðru lagi að því að félags- og húsnæðismálaráðherra hafi ekki skipað svæðisráð um strandsvæðisskipulag Austfjarða í samræmi við fyrirmæli laga nr. 88/2018, um skipulag haf- og strandsvæða. Í þriðja og síðasta lagi lýtur kvörtunin að málsmeðferð Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar í sambandi við aðildarkröfu landeigendanna að stjórnsýslumáli sem varðar umsókn um byggingarleyfi fyrir mannvirkjum til sjókvíaeldis í Seyðisfirði. Er nánar tiltekið fundið að því að í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, þar sem felld var úr gildi synjun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um að ljá eigendum tiltekinna sjávarðjarða aðild að umræddu stjórnsýslumáli, hafi málið verið tekið upp að nýju af hálfu stofnunarinnar og þér veitt færi á að færa fram rökstuðning um aðildarhagsmuni landeigendanna, en þá hafi stofnunin ekki getað staðfest við þig að veittur yrði frestur til andmæla og niðurstöðu úr kæruferli ef ekki væri fallist á aðildarkröfuna.

  

II

Að því er varðar þann hluta kvörtunarinnar sem lýtur að töfum á viðbrögðum Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar við erindi þínu 7. nóvember 2025 er vísað til þess að samkvæmt afriti af samskiptum þínum við stofnunina sem barst umboðsmanni 3. júní sl. hefur þú verið í samskiptum við stofnunina frá 21. maí sl., um sama mál og erindi þitt frá 7. nóvember 2025 varðaði, og fengið nokkur svör. Þar sem þessi hluti kvörtunarinnar lýtur að töfum á viðbrögðum við erindi og í ljósi þess að þú hefur nú verið í talsverðum samskiptum við stofnunina tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af þessum hluta kvörtunarinnar.

Hvað snertir skort á viðbrögðum félags- og húsnæðismálaráðuneytisins við beiðni þinni um fund með ráðherra skal tekið fram að með tölvupósti til umboðsmanns 13. júlí sl. upplýstir þú að fundur með ráðherra hefði farið fram í lok júní. Þar sem þessi hluti kvörtunarinnar lýtur einnig að töfum og í ljósi þess að nú hefur fundurinn farið fram tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar af þessu tilefni.

  

III

Um þann þátt kvörtunarinnar, sem lýtur að því að svæðisráð Austfjarða hafi ekki verið skipað tel ég rétt að vekja athygli á því að í lögum nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er gengið út frá því að meginviðfangsefni umboðsmanns sé að taka við kvörtunum frá borgurunum og láta þeim í té álit um það hvort stjórnvöld hafi leyst með réttum hætti úr máli þeirra. Þannig er kveðið á um það í 2. mgr. 4. gr. laganna að hver sá sem telur sig hafa verið beittan rangsleitni af hálfu aðila sem eftirlit umboðsmanns tekur til geti kvartað af því tilefni til umboðsmanns. Í þessu felst að til þess að kvörtun verði borin fram við umboðsmann verður að liggja fyrir ákveðin ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem beinist sérstaklega að þeim sem leggur fram kvörtun eða varðar beinlínis hagsmuni hans eða réttindi umfram aðra. Það er hins vegar ekki hlutverk umbðosmanns að láta fólki í té lögfræðilegar álitsgerðir í þeim tilvikum sem það hefur ekki slíkra hagsmuna að gæta.

Ástæða þess að þetta er tekið fram er sú að það leiðir af lögum nr. 88/2018 að frumkvæði að endurskoðun strandsvæðisskipulags hvílir hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulags-stofnun, aðliggjandi sveitarfélögum og eftir atvikum ráðherra, þótt öðrum sé að sjálfsögðu fært að beina erindum til viðkomandi stjórnvalda með ábendingum um þörf á slíkri endurskoðun. Sé slíkt erindi borið fram verður þó ekki séð að lögin geri ráð fyrir sérstakri aðkomu eða aðild viðkomandi að ákvörðun um hvort fara skuli fram á endurskoðun skipulagsins. Að því virtu tel ég ekki uppyllt skilyrði til þess að kvörtunarefnið, er lýtur að því að svæðisráð hafi ekki verið skipað um strandsvæðisskipulag Austfjarða, verði tekið til frekari meðferðar á grundvelli kvörtunar, sbr. einnig bréf umboðsmanns Alþingis í máli nr. 204/2026. Verður því litið á þær athugasemdir sem fram koma í kvörtuninni sem ábendingar um atriði sem vert kann að vera fyrir umboðsmann að taka til skoðunar á grundvelli frumkvæðisheimildar 5. gr. laga nr. 85/1997.

  

IV

Hvað varðar þann þátt kvörtunarinnar sem lýtur að samskiptum við Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, þar sem stofnunin hafnar því að staðfesta að veittur verði frestur, ef ekki verður fallist á aðild landeigendanna að umræddu stjórnsýslumáli, er rétt að geta þess að það leiðir af lögum nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, að almennt er ekki gert ráð fyrir því að umboðsmaður fjalli um mál fyrr en það hefur verið endanlega til lykta leitt hjá stjórnvöldum, sbr. 3. mgr. 6. gr. laganna. Af þeim gögnum sem fylgdu kvörtuninni verður ekki annað ráðið en að málið sé enn til meðferðar hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Þar sem ekki verður séð að meðferð málsins sé lokið eru ekki uppfyllt skilyrði til þess að kvörtunin verði tekið til frekari meðferðar að svo stöddu.

 

V

Með vísan til þess sem að framan er rakið lýk ég athugun minni á kvörtuninni, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.