Útlendingar. Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða. Skýringar fengnar.

(Mál nr. 414/2026)

Kvartað var yfir töfum á afgreiðslu umsóknar um dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun.  

Í ljósi svara stofnunarinnar um að umsóknin hefði nú verið afgreidd taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna málsins.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 19. ágúst 2026.

  

  

Vísað er til kvörtunar þinnar 30. júní sl., yfir löngum afgreiðslutíma hjá Útlendingastofnun. Af kvörtuninni og gögnum sem henni fylgdu mátti ráða að þú hafir lagt fram umsókn um dvalarleyfi hér á landi í júní 2025.

Í tilefni af kvörtuninni var Útlendingastofnun ritað bréf 17. júlí sl. þar sem óskað var eftir upplýsingum um hvað liði meðferð og afgreiðslu máls þíns. Svar barst frá stofnuninni 12. ágúst sl. þar sem fram kemur meðal annars að þér hafi verið veitt ótímabundið dvalarleyfi hér á landi með ákvörðun stofnunarinnar 6. ágúst sl.

Í ljósi svara stofnunarinnar tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtun þinni. Lýk ég því meðferð minni á henni með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.