A kvartaði yfir töfum á afgreiðslu fyrirtækjaskrár Skattsins á erindi hans sem varðaði synjun fyrirtækjaskrár á breyttu lögheimili sameignarfélags.
Í svari Skattsins við fyrirspurn umboðsmanns kom fram að ákvörðun hefði verið tekin í málinu og birt A á island.is Taldi umboðsmaður því ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 19. ágúst 2026.