A kvartaði yfir synjun þróunarsjóðs námsgagna á umsókn hans um úthlutun styrks úr sjóðnum. Í kvörtuninni var því haldið fram að málsmeðferð sjóðsins hafi brotið í bága við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga, meðal annars 15. gr. um rétt aðila máls til aðgangs að gögnum þess.
Athugun umboðsmanns var afmörkuð við það álitaefni hvort þróunarsjóðnum hafi verið heimilt að synja A um aðgang að tveimur matsblöðum sem urðu til við meðferð málsins og byggt var á við töku ákvörðunar í málinu. Synjunin var reist á þeim grundvelli að um væri að ræða vinnuskjöl í skilningi 3. töluliðar 1. mgr. 16. gr. stjórnsýslulaga. Matsblöðin stöfuðu annars vegar frá stjórnarmanni sjóðsins og hins vegar utanaðkomandi sérfræðingi og þar mátti finna einkunnagjöf vegna umsóknar A og athugasemdir til nánari skýringar á henni.
Með vísan til orðalags 3. töluliðar 1. mgr. 16. gr. stjórnsýslulaga taldi umboðsmaður ekki unnt að líta svo á að matsblaðið sem stafaði frá utanaðkomandi sérfræðingnum gæti talist til vinnuskjals í skilningi ákvæðisins. Því færi um aðgang að skjalinu samkvæmt 15. gr. stjórnsýslulaga og undantekningarreglu 17. gr. sömu laga. Þar sem mat hefði ekki farið fram samkvæmt 17. gr. taldi umboðsmaður að afgreiðsla þróunarsjóðsins varðandi aðgang að matsblaðinu hefði ekki verið í samræmi við 15.–17. gr. stjórnsýslulaga.
Hvað snerti synjun þróunarsjóðsins á beiðni A um aðgang að matsblaði stjórnarmanns þróunarsjóðsins vísaði umboðsmaður til þess að matsblaðið gæti í því tilviki talist vinnuskjal í skilningi 3. töluliðar 1. mgr. 16. gr. stjórnsýslulaga. Aftur á móti leit umboðsmaður til þess, að virtu efni matsblaðsins, að A kynni að eiga rétt á aðgangi að því eða hluta þess með vísan til þess að þar væri að finna upplýsingar sem hefðu vegið þungt við töku ákvörðunar um synjun umsóknar A og sem ekki kæmu fram í ákvörðuninni sjálfri eða öðrum gögnum málsins. Þar sem ekki yrði séð að þróunarsjóðurinn hefði framkvæmt mat á því hvort rétt væri að veita A umræddar upplýsingar taldi umboðsmaður að afgreiðsla þróunarsjóðsins að því er varðaði aðgang að matsblaði stjórnarmannsins hefði ekki verið í samræmi við fyrirmæli 3. töluliðar 1. mgr. 16. gr. og 2. mgr. 16. gr. stjórnsýslulaga.
Loks taldi umboðsmaður að afgreiðsla þróunarsjóðsins á upplýsingabeiðni A vegna matsblaðanna tveggja hefði ekki fullnægt kröfum 1. mgr. 19. gr. stjórnsýslulaga, sbr. einkum 22. gr. um efni rökstuðnings.
Umboðsmaður beindi þeim tilmælum til þróunarsjóðs námsgagna að leyst yrði úr beiðni A um aðgang að upplýsingum í samræmi við þau sjónarmið sem gerð var grein fyrir í álitinu, kæmi fram ósk frá honum þess efnis. Því var jafnframt beint til þróunarsjóðsins að taka framvegis mið af þeim sjónarmiðum sem fram kæmu í álitinu.
Umboðsmaður lauk málinu með áliti 17. júlí 2026.