Neytendamál. Kæruleið ekki tæmd. Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls.

(Mál nr. 458/2026)

A ehf. leitaði til umboðsmanns með kvörtun yfir tveimur nánar tilgreindum ákvörðunum Neytendastofu er vörðuðu markaðssetningu fyrirtækisins á starfsemi sinni.

Umboðsmaður taldi að skilyrði stæðu ekki til nánari umfjöllunar um kvörtunina að svo stöddu, enda hefðu ákvarðanirnar verið kærðar til áfrýjunarnefndar neytendamála.

Umboðsmaður taldi ekki heldur tilefni til að aðhafast vegna kvörtunarinnar að því leyti sem hún laut að töfum á afgreiðslu málsins hjá áfrýjunarnefndinni, enda stæði til að beina erindi til nefndarinnar um hvenær niðurstöðu væri að vænta í málinu.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 31. júlí 2026.