Kvartað var yfir synjun dómsmálaráðuneytisins á beiðni um gjafsókn í tengslum við kröfu um greiðslu skaðabóta gagnvart erlendu tryggingafélagi vegna slyss sem A varð fyrir.
Taldi umboðsmaður ekki ástæðu til þess að gera athugasemdir við þá afstöðu gjafsóknarnefndar sem birtist í umsögn hennar til ráðuneytisins að mæla ekki með gjafsókn á þeim grundvelli að ekki hefðu verið sýnt fram á að úrlausn málsins hefði verulega almenna þýðingu, eða sérstök rök mæltu með gjafsókn vegna einkahaga A, og loks að varanleg örorka A væri ekki svo mikil að aflahæfi hans yrði svo skert að rétt hefði verið að mæla með gjafsókn. Taldi umboðsmaður því að fullnægjandi grundvöllur hefði verið lagður að ákvörðun dómsmálaráðuneytisins um synjun gjafsóknar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 31. júlí 2026.