Kvartað var yfir niðurstöðu úrskurðarnefndar velferðarmála þar sem nefndin staðfesti ákvörðun Tryggingastofnunar um að synja umsókn viðkomandi um örorkulífeyri. Niðurstaða nefndarinnar byggði einkum á því að undanþáguákvæði í reglugerð ætti ekki við í málinu.
Umboðsmaður taldi að í ljósi þess hvernig umrætt reglugerðarákvæði væri orðað væru ekki forsendur til að gera athugasemdir við niðurstöðu nefndarinnar í málinu. Ákvæðið ætti þannig aðeins við um þá sem hlotið hefðu alþjóðlega vernd hér á landi, og samkvæmt gögnum málsins ætti slíkt ekki við um viðkomandi.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 13. júlí 2026.