Lögreglu- og sakamál. Meðferð ákæruvalds. Rökstuðningur. Hatursorðræða.

(Mál nr. 128/20226, 139/2026 og 140/2026)

A kvartaði yfir því að ríkissaksóknari hefði staðfest ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að vísa frá þremur kærum hans. Lutu þær að ætluðum brotum gegn 233. gr. almennra hegningarlaga og 122. gr. sömu laga.

Eftir að hafa kynnt sér ákvörðun ríkissaksóknara og gögn málsins taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að gera athugasemdir við niðurstöðu saksóknara. Horfði umboðsmaður meðal annars til þess svigrúms, sem ríkissaksóknari nyti til mats.

  

Umboðsmaður lauk málunum með bréfi 13. júlí 2026.