A kvartaði yfir niðurstöðu úrskurðarnefndar velferðarmála þar sem nefndin synjaði beiðni hennar um endurupptöku mála sem höfðu lotið að synjun á umsóknum hennar um örorkulífeyri og tengdar greiðslur á þeim grundvelli að endurhæfing teldist ekki fullreynd.
Umboðsmaður taldi að ekki væru forsendur til að gera athugasemdir við meðferð málsins og þá niðurstöðu nefndarinnar að synja beiðni A um endurupptöku málanna. Umboðsmaður minnti meðal annars á þær takmarkanir sem væru á því að umboðsmaður gæti endurmetið sérfræðilegt mat stjórnvalda af því tagi sem átt hefði sér stað í málinu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 18. júní 2026.