Skattar og gjöld. Stöðubrot. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 315/2026)

A kvartaði yfir álagningu stöðubrotsgjalds og starfsháttum lögreglu því tengdu.

Þar sem fyrir lá að hið álagða gjald hefði verið fellt niður og A hafði ekki leitað með umkvartanir sínar vegna starfshátta lögreglu til nefndar um eftirlit með lögreglu taldi umboðsmaður að ekki væri skilyrði til þess að taka málið til frekari athugunar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 24. júní 2026.