Opinberir starfsmenn. Ráðningar í opinber störf. Aðgangur að upplýsingum. Ekki ástæða til aðgerða. Skýringar fengnar. Ábending.

(Mál nr. 38/2025)

A kvartaði yfir ráðningu í starf hjá sveitarfélagi. Athugasemdir í kvörtuninni lutu meðal annars að framkvæmd og niðurstöðu mats á menntun, reynslu og þekkingu umsækjenda. Þá voru í kvörtuninni gerðar athugasemdir við afgreiðslu sveitarfélagsins á beiðni A um afhendingu allra gagna málsins.

Að virtum gögnum málsins, svo og með hliðsjón af því svigrúmi sem almennt yrði að játa stjórnvöldum við val á sjónarmiðum og vægi þeirra í ráðningarmálum taldi umboðsmaður sig ekki hafa forsendur til að draga þá ályktun að mat sveitarfélagsins á umsækjendum hefði verið óforsvaranlegt. Að öðru leyti var ekkert talið fram komið sem benti til annars en að málsmeðferðarreglum hefði verið fylgt við töku ákvörðunar um ráðninguna.

Þrátt fyrir þessa niðurstöðu taldi umboðsmaður tilefni til að senda sveitarfélaginu ábendingu, einkum í tengslum við meðferð og afgreiðslu á gagnabeiðni A.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 23. júní 2026.