Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Beiðni um aðgang að gögnum og upplýsingum. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 369/2026)

A kvartaði yfir töfum á svörum við erindum til forsætis- og utanríkisráðuneytis og beiðnum um upplýsingar.

Þar sem A hafði nýlega ítrekað erindi sín taldi umboðsmaður að ekki hefðu orðið svo miklar tafir á svörum ráðuneytanna að tilefni væri til að taka kvörtunina til frekari athugunar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 22. júní 2026.