Sveitarfélög. Málefni aldraðra. Ekki ástæða til aðgerða. Skýringar fengnar.

(Mál nr. 214/2025)

Félag eldri borgara leitaði til umboðsmanns Alþingis með kvörtun vegna ákvörðunar borgarráðs Reykjavíkurborgar um að breyta samþykkt öldungarráðs sveitarfélagsins. Áður kvað samþykktin á um að „Félag eldri borgara“ skyldi tilnefna þrjá fulltrúa og þrjá til vara, en eftir breytingarnar var félaginu einungis falið að tilnefna einn fulltrúa og einn til vara. Laut kvörtunin að því hvort fyrirmæli laga, þess efnis að „félag eldri borgara“ skyldi tilnefna þrjá fulltrúa í ráðið, vísuðu einungis til „Félags eldri borgara“ eða almennt til félaga sem starfrækt væru í viðkomandi sveitarfélagi og gættu hagsmuna eldri borgara þar.

Þar sem fyrir lá að borgarstjórn hafði á fundi sínum samþykkt tillögu sem væri í samræmi við afstöðu félagsins og falið forsætisnefnd að gera samþykkt fyrir öldungaráð sveitarfélagsins í þá vegu taldi umboðsmaður ekki tilefni til þess að taka kvörtun félagsins til frekari umfjöllunar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 15. júní 2026.