Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða. Skýringar fengnar.

(Mál nr. 265/2026)

Kvartað var yfir skorti á viðbrögðum við erindi sem sent hafði verið innviðaráðuneytinu.  

Í ljósi svara ráðuneytisins og áforma þess um að ljúka málinu taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 4. júní 2026.