A kvartaði yfir nýju kerfi örorkulífeyris sem tók gildi í kjölfar setningar laga nr. 104/2024, um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyris almannatrygginga.
Þar sem kvörtunin laut að fyrirkomulagi sem Alþingi hafði tekið afstöðu til með lögum auk þess sem ekki lá fyrir ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi stjórnvalds sem beindist sérstaklega að A voru ekki uppfyllt skilyrði til þess að umboðsmaður fjallaði um kvörtunina.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 29. maí 2026.