Skattar og gjöld. Yfirstjórnunar- og eftirlitsheimildir. Ekki ástæða til aðgerða. Skýringar fengnar.

(Mál nr. 551/2026)

A hf. kvartaði yfir framkvæmd Skattsins á innheimtu skilagjalds og umsýsluþóknunar fyrir framleiddar og innfluttar drykkjarvörur í einnota umbúðum.

Umboðsmaður vísaði til þess að kveðið væri á um hlutverk A hf. í lögum. Af lögunum yrði þó ekki dregin sú ályktun að í því hlutverki fælist aðild félagsins að málum sem vörðuðu álagningu gjalda á einstaka gjaldskylda aðila. Af þeim sökum voru ekki uppfyllt skilyrði til þess að framkvæmd Skattsins yrði tekin til nánari athugunar á grundvelli kvörtunar félagsins.

Í kvörtuninni voru jafnfamt gerðar athugasemdir við viðbrögð fjámála- og efnahagsráðuneytisins við ábendingum félagsins. Að fengnum skýringum frá ráðuneytinu taldi umboðsmaður ekki tilefni til að taka erindi félagsins til frekari athugunar á grundvelli kvörtunar.

 

Umboðsmaður lauk máliu með bréif 22. maí 2026.