Fangelsismál. Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 51/2026)

A kvartaði yfir því að Fangelsismálastofnun hefði ekki svarað erindum A sem lutu meðal annars að aðstæðum A sem fatlaðs fanga. Þá beindist kvörtunin einnig að starfsháttum stofnunarinnar almennt og að umhverfi og aðbúnaði í fangelsum.

Að fengnum þeim skýringum Fangelsismálastofnunar að umræddu erindi hefði verið svarað, taldi umboðsmaður ekki tilefni til að aðhafast frekar í tilefni af því. Hvað varðaði athugasemdir A um starfshætti stofnunarinnar taldi umboðsmaður rétt að A bæri þær aðfinnslur sínar undir dómsmálaráðherra áður en leitað væri til umboðsmanns af sama tilefni. Voru því ekki skilyrði að svo stöddu til að umboðsmaður tæki kvörtunina til meðferðar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 20. maí 2026.