Félagsþjónusta sveitarfélaga. Húsnæðismál. Félagslegar íbúðir. Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 221/2026)

A kvartaði yfir töfum á afgreiðslu umsóknar um milliflutning í félagslegt leiguhúsnæði á vegum Reykjavíkurborgar og Félagsbústaða.

Samkvæmt svörum Reykjavíkurborgar við fyrirspurn umboðsmanns var málið í farvegi hjá borginni. Að því virtu og í ljósi þeirra skýringa sem umboðsmaður hafði fengið á þeirri stöðu sem er uppi í málaflokknum taldi hún ekki ástæðu til að aðhafast frekar í málinu.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 20. maí 2026.