A kvartaði yfir viðbrögðum sýslumanns við beiðni hans um endurgreiðslu fjárhæðar sem hann greiddi vegna umsóknar um endurnýjun vegabréfs.
Þar sem ekki varð annað ráðið en að beiðni hans væri enn til meðferðar hjá sýslumanni voru ekki uppfyllt skilyrði til þess að kvörtunin yrði tekin til nánari athugunar. Þá taldi umboðsmaður að ekki hefði enn orðið slíkur dráttur á svörum sýslumanns að tilefni væri til að beina fyrirspurn til embættisins um hvað liði meðferð og afgreiðslu þess.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 11. maí 2026.