A leitaði til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir því að fjárhæð starfslauna listamanna hefðu ekki tekið tillit til þeirrar þróunar sem hefði orðið á launum og verðlagi líkt og gert væri ráð fyrir í lögum um listamannalaun.
Umboðsmaður vísaði til þess að samkvæmt lögum væri það verkefni Alþingis að taka afstöðu til endurskoðunar fjárhæðar listamannalauna við afgreiðslu fjárlaga ár hvert. Voru því ekki uppfyllt skilyrði til þess að kvörtunin yrði tekin til frekari meðferðar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 12. maí 2026.