A kvartaði yfir atriðum, sem hann hafði kvartað yfir áður, þ.e. töfum og aðgerðaleysi, en hann taldi nýjar upplýsingar og sjónarmið gefa tilefni til endurskoðunar fyrri afstöðu umboðsmanns.
Eftir að hafa kynnt sér gögnin að teknu tilliti til fyrri kvörtunar taldi umboðsmaður ekki tilefni til að endurskoða fyrri afstöðu. Hluti þeirra samskipta, sem vísað var til, lágu fyrir við meðferð fyrri kvörtunarinnar en önnur samskipti, sem vísað var til, báru ekki með sér að erindi A hefðu verið ítrekuð. Með vísan til framangreinds taldi umboðsmaður hvorki tilefni til að endurskoða fyrri afstöðu né til að taka kvörtunina til frekari athugunar að öðru leyti.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 11. maí 2026.