A kvartaði yfir því að Skatturinn hefði ekki veitt honum umbeðnar upplýsingar um skattalega meðferð tekna hans. Taldi hann að svör Skattsins væru ekki í samræmi við það hvernig skattkerfið virkaði í raun og veru.
Með vísan til yfirstjórnar fjármála- og efnahagsráðherra með skattamálum taldi umboðsmaður rétt að A bæri aðfinnslur sínar undir ráðherra áður en leitað væri til umboðsmanns af sama tilefni.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. apríl 2026.