A leitaði til umboðsmanns með kvörtun yfir aðgerðarleysi byggingarfulltrúa og heilbrigðiseftirlits vegna ónæðis, hávaða og slæms aðbúnaðar í og við húsnæði A, sem rekja mætti til nágranna hennar.
Í kjölfar fyrirspurna umboðsmanns var upplýst um að byggingarfulltrúinn hefði tilkynnt A um að ekki yrði aðhafst frekar í tilefni af umkvörtunum hennar vegna málsins og henni leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þá kom fram af hálfu heilbrigðiseftirlitsins að nágranna A hefði verið ritað bréf þar sem þess var krafist að lóðin yrði hreinsuð, en ellegar yrði gripið til þvingunaraðgerða.
Þar sem kæru vegna aðgerðarleysis byggingarfulltrúa hafði verið beint til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, og í ljósi þess að heilbrigðiseftirlitið hafði beint áskorun til nágranna A um að ljúka tiltekt á umræddri lóð, taldi umboðsmaður að skilyrði stæðu ekki til frekari umfjöllunar um kvörtunina að svo stöddu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 22. apríl 2026.