A kvartaði yfir töfum og aðgerðaleysi í tengslum við að barnsmóðir hans hefði farið með börn þeirra til útlanda og haldið þeim frá A þótt hann færi með forsjá þeirra. Var annars vegar um að ræða sakamál tengt umræddum atvikum og hins vegar aðkomu dómsmálaráðuneytisins.
Þar sem ekki varð séð að A hefði nýlega spurst fyrir um hvernig meðferð málanna miðaði hjá viðeigandi stjórnvöldum taldi umboðsmaður ekki tilefni til að taka kvörtunina til frekari meðferðar að svo stöddu.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 22. apríl 2026.