Börn. Umgengni. Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Leiðrétting.

(Mál nr. 170/2026)

Kvartað var yfir töfum á afgreiðslu sýslumannsins X á máli sem laut að ágreiningi foreldra um umgengni við dóttur þeirra.

Að fengnum skýringum sýslumanns, þar sem fram kom að nú hefði verið úrskurðað í málinu, taldi umboðsmaður ekki tilefni til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni. Hafði umboðsmaður þar jafnframt í huga að af hálfu sýslumanns var gengist við því að meðferð málsins hefði tekið of langan tíma.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréf 21. apríl 2026.