Útlendingar. Vegabréfsáritun. Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 249/2026)

Kvartað var yfir töfum á afgreiðslu kærunefndar útlendingamála á kæru vegna synjunar Útlendingastofnunar á umsókn um vegabréfsáritun á Schengen-svæðið.

Af hálfu umboðsmanns var vísað til þess að þær tafir sem orðið hefðu á afgreiðslu kærunnar mætti einkum rekja til þeirrar miklu fjölgunar á kærumálum sem nefndinni hefðu borist síðastliðin ár vegna synjunar á vegabréfsáritun. Þannig lægi ekki annað fyrir en að tafirnar væru almennar en ekki bundnar við málið sérstaklega. Taldi umboðsmaður því ekki tilefni til að beina fyrirspurn til nefndarinnar um hvað liði meðferð og afgreiðslu málsins, enda væri ekki við öðru að búast en að hið sama kæmi fram í svörum hennar í tilefni af fyrirspurn þar að lútandi.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 21. apríl 2026.