A leitaði til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir því að sveitarfélagið X hefði ekki svarað erindum um greiðslu kostnaðar umbjóðanda hans.
Að mati umboðsmanns hafði ekki orðið slíkur dráttur á svörum sveitarfélagsins við erindi A að tilefni væri til að taka kvörtunina til frekari athugunar. Þá varð heldur ekki ráðið af kvörtuninni að erindið hefði verið ítrekað.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 20. apríl 2026.