A kvartaði yfir ákvörðun X um að loka starfsmannaaðgangi hans á grundvelli verklagsreglu um skil á búnaði og lokun aðganga vegna langtímafjarveru og ætluðum brotum stofnunarinnar á verklagsreglum í eineltismálum. Loks gerði A athugasemd við framkvæmd undirritunar á starfslokasamningi hans við stofnunina.
Umboðsmaður tók fram að setning innri verklagsreglna, líkt og þeirra sem kvörtunin lyti að, væri þáttur í almennum stjórnunarheimildum forstöðumanns ríkisstofnunar og ákvarðanir um hvort veittar skyldu undanþágur frá slíkum reglum teldust ekki stjórnvaldsákvarðanir. Um undirbúning slíkra ákvarðana giltu því ekki ákvæði stjórnsýslulaga en óskráðar reglur stjórnsýsluréttar gætu þó sett svigrúmi forstöðumanns skorður. Að virtum þeim skýringum sem A voru veittar þegar beiðni hans um undanþágu var synjað taldi umboðsmaður ekki tilefni til að taka málið til frekari athugunar.
Umboðsmaður taldi ekki tilefni til þess að taka kvörtun A vegna ætlaðra brota X á verklagsreglu í eineltismálum til nánari skoðunar. Þá benti umboðsmaður á að A væri rétt að leita með athugasemd sína við ákvæði starfslokasamnings til ráðherra áður en kvartað væri til umboðsmanns.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 21. apríl 2026.