Börn. Foreldrar. Umgengni. Ekki ástæða til aðgerða. Skýringar fengnar.

(Mál nr. 13027/2024)

A kvartaði yfir úrskurði dómsmálaráðuneytisins þar sem ráðuneytið hafði staðfest, með tilteknum breytingum, úrskurð sýslumanns þar sem kveðið var til bráðabirgða á um inntak umgengni A við barn hans. A gerði meðal annars athugasemdir við að honum væri gert að undirgangast fíkniefnapróf og afhenda barnsmóður áður en umgengnin færi fram.

Umboðsmaður taldi að ekki væru forsendur til að gera athugasemdir við niðurstöðu ráðuneytisins í málinu. Leit umboðsmaður meðal annars til þess að löggjöfin veitti stjórnvöldum svigrúm við mat á því hvaða atriði skyldi leggja til grundvallar við ákvörðun um umgengni og mat á því hvað barni væri fyrir bestu, eftir aðstæðum hverju sinni. Umboðsmaður leit þá jafnframt til þess að um ákvörðun til bráðabirgða hefði verið að ræða, á meðan frekari rannsókn á atvikum málsins færi að öðru leyti fram.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 17. apríl 2026.