Almannatryggingar. Húsnæðisbætur.

(Mál nr. 162/2026)

A kvartaði yfir úrskurði úrskurð úrskurðarnefndar velferðarmála, en með honum var kæru A til nefndarinnar, vegna ákvörðunar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um að synja umsókn A um húsnæðisbætur, vísað frá sökum þess að hún barst að kærufresti liðnum. Þá voru í kvörtuninni gerðar athugasemdir vegna breytinga sem orðið höfðu á högum A eftir að hún hóf töku ellilífeyris.

Umboðsmaður taldi ekki ástæðu til að gera athugasemdir við frávísun kærunnar. Umboðsmaður tók þó fram að hefðu aðstæður A breyst frá því að hún sótti upphaflega um húsnæðisbætur, eða A teldi að öðru leyti ástæðu til, ætti hún kost á að leggja fram nýja umsókn hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Þá taldi umboðsmaður rétt að A leitaði til Tryggingastofnunar væri uppi ágreiningur um greiðslur og fjárhæð ellilífeyris, og eftir atvikum úrskurðarnefndar velferðarmála, áður en leitað væri til umboðsmanns með kvörtun.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 16. apríl 2026.