Veiðimál og veiðiréttindi. Ekki aðild.

(Mál nr. 217/2026)

A kvartaði yfir verklagsreglum Náttúruverndarstofnunar er vörðuðu öflun réttinda sem leiðsögumaður með hreindýraveiðum.

Þar sem kvörtunin laut ekki að tiltekinni ákvörðun eða athöfn stjórnvalds, sem varðaði hagsmuni A sérstaklega umfram hagsmuni annarra, taldi umboðsmaður ekki fullnægt lagaskilyrðum til að kvörtunin yrði tekin til frekari meðferðar.

Umboðsmaður tók fram að umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra færi með yfirstjórnunar- og eftirlitsheimildir gagnvart Náttúruverndarstofnun og A væri unnt að beina ábendingum sínum til þess ráðuneytis.  

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 14. apríl 2026.