Nauðungarvistun. Lögregla. Heilbrigðisstarfsmenn. Starfssvið umboðsmanns Alþingis. Dómstólar. Málskot til æðra stjórnvalds. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 208/2026 og 230/2026)

A kvartaði yfir atvikum tengdum nauðungarvistun hans. Atvikin vörðuðu vistunina sjálfa og þvingaða meðferð á meðan henni stóð en einnig framgöngu lögreglumanna og heilbrigðisstarfsfólks í tengslum við vistunina.  

Umboðsmaður benti á að í lögræðislögum er gert ráð fyrir að mál sem lúta að nauðungarvistunum og þvingaðri meðferð skuli sæta sérstakri meðferð fyrir dómstólum. Þar af leiðandi væru ekki skilyrði til þess að taka þann þátt kvörtunarinnar til meðferðar. Hvað varðaði framgöngu lögreglunnar taldi umboðsmaður rétt að aðfinnslur A yrðu bornar undir nefnd um eftirlit með lögreglu áður en leitað yrði til umboðsmanns. Þá taldi umboðsmaður rétt að athugasemdir A við aðkomu einstakra heilbrigðisstarfsmanna að málinu yrðu eftir atvikum bornar undir yfirstjórn viðkomandi heilbrigðisstofnunar, landlækni og heilbrigðisráðuneytið. Voru því ekki heldur skilyrði til þess að taka þessa þætti kvörtunarinnar til meðferðar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 14. apríl 2026.