Börn. Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 66/2026)

A kvartaði einkum yfir töfum á málsmeðferð sýslumanns á málum er lutu að umgengni við barn hennar.

Í tilefni kvörtunarinnar var sýslumanni ritað bréf þar sem þess var óskað að umboðsmaður yrði upplýstur um hvernig meðferð málanna miðaði. Þar sem í svari sýslumanns kom fram að unnið hefði verið að málinu og gert væri ráð fyrir að það yrði afgreitt á næstu vikum taldi umboðsmaður ekki tilefni til frekari athugunar á kvörtuninni.

    

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 10. apríl 2026.