A kvartaði var yfir töfum á afgreiðslu Sjúkratrygginga á umsókn um örorkubætur vegna vinnuslyss.
Í svari stofnunarinnar í tilefni af fyrirspurn umboðsmanns kom meðal annars fram að ákvörðun í málinu hefði verið tekin og birt A. Lauk umboðsmaður því athugun sinni vegna málsins.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 9. apríl 2026.