A beindi tveimur kvörtunum til umboðsmanns sem beindust annars vegar að Matvælastofnun og hins vegar að Byggðastofnun.
Fyrri kvörtunin laut að drætti á svörum Matvælastofnunar við erindi A í tengslum við sölu fæðubótarefna. Í svari Matvælastofnunar við fyrirspurn umboðsmanns vegna þess máls kom fram að erindinu hefði nú verið svarað. Af þeim sökum taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna kvörtunarinnar.
Seinni kvörtun A laut að málsmeðferð Byggðastofnunar í tengslum við kvörtun sem beint hafði verið til stofnunarinnar vegna vinnubragða Íslandspósts ohf. Nánar tiltekið laut kvörtunin til umboðsmanns að því að Byggðastofnun hefði verið að hnýsast í einkamál A við meðferð málsins. Áður en umboðsmaður tæki kvörtunina til frekari meðferðar taldi hún rétt að A freistaði þess fyrst að leita með athugasemdir sínar til innviðaráðuneytisins, sem færi meðal annars með yfirstjórn mála er varða Byggðastofnun.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 30. mars 2026.