Útlendingar. Dvalarleyfi. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 14/2026)

A kvartaði yfir niðurstöðu kærunefndar útlendingamála þar sem nefndin staðfesti ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn A um endurnýjun dvalarleyfis vegna náms.  

Umboðsmaður taldi ekki forsendur til að gera athugasemdir við niðurstöðu kærunefndarinnar. Umboðsmaður leit til þess að til grundvallar niðurstöðu í málinu hefðu legið upplýsingar um námsárangur A og að hann hefði ekki verið viðunandi í skilningi laga. Skilyrði laga til að endurnýja leyfið hefðu því ekki verið uppfyllt. Þá hefði kærunefndin gert athugasemdir við þann drátt sem varð á afgreiðslu umsóknarinnar af hálfu Útlendingastofnunar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 30. mars 2026.