Skipulags- og byggingarmál. Strandsvæðisskipulag. Ekki aðild.

(Mál nr. 204/2026)

Kvartað var yfir því að ráðherra hefði ekki skipað svæðisráð um strandsvæðisskipulag Austfjarða í samræmi við lög um skipulag haf- og strandsvæða. Hefði það leitt til þess að ekki væri unnt að ná fram breytingum á núgildandi strandsvæðisskipulagi. Þá beindist kvörtunin jafnframt að viðbrögðum Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar við beiðni félagsins um upplýsingar og gögn.

Umboðsmaður vísaði til þess að það leiddi af lögum að frumkvæði að endurskoðun strandsvæðisskipulags hvíldi hjá Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun, aðliggjandi sveitarfélögum og eftir atvikum ráðherra, þótt öðrum væri að sjálfsögðu fært að beina erindum til viðkomandi stjórnvalda með ábendingum um þörf á slíkri endurskoðun. Væri slíkt erindi borið fram yrði þó ekki séð að lögin gerðu ráð fyrir sérstakri aðkomu eða aðild viðkomandi að ákvörðun um hvort fara skyldi fram á endurskoðun skipulagsins. Taldi umboðsmaður því ekki uppfyllt skilyrði til þess að kvörtunarefnið yrði tekið til frekari meðferðar á grundvelli kvörtunar.

Loks taldi umboðsmaður ekki uppfyllt skilyrði til þess að taka þann þátt kvörtunarinnar til meðferðar sem laut að viðbrögðum Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar við beiðni félagsins um upplýsingar og gögn, enda hafði sú afgreiðsla ekki verið borin undir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréf 30. mars 2026.