Fjölmiðlun. Stjórnsýslunefnd. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 62/2026)

Kvartað var yfir ákvörðun fjölmiðlanefndar um að ekki væru nægar ástæður til að taka erindi til meðferðar. Laut erindið að því að ritstjórn fjölmiðilsins X hefði fjarlægt skoðanagrein og synjað um birtingu endurskoðaðrar útgáfu hennar auk annarrar greinar.

Af niðurstöðu nefndarinnar varð ekki annað ráðið en að hún hefði tekið erindið til skoðunar og í kjölfarið lagt mat á það á grundvelli þeirra lagaákvæða sem hún taldi eiga við í málinu og heyrðu undir eftirlit hennar.  Umboðsmaður taldi sig ekki hafa forsendur til að fullyrða að nefndin hefði ekki kynnt sér erindið nægjanlega, byggt hefði verið á ófullnægjandi upplýsingum eða að nefndin hefði dregið bersýnilega óforsvaranlegar ályktanir við meðferð málins. Með tilliti til lögbundinna verkefna fjölmiðlanefndar taldi umboðsmaður sig ekki hafa forsendur til að gera athugasemdir við niðurstöðu nefndarinnar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 24. mars 2026.