Málefni fatlaðs fólks. Börn. Almannatryggingar. Sjúkratryggingar. Starfssvið umboðsmanns. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 436/2026)

A kvartaði yfir því að talmeinaþjónustu sem barn hennar naut hjá sjálfstætt starfandi talmeinasérfræðingi var hætt.

Þar sem sá aðili sem veitti þjónustuna starfar á einkaréttarlegum grundvelli féll kvörtunin utan starfssviðs umboðsmanns. Umboðsmaður tók þó fram að landlæknir hefði eftirlit með heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsfólki. A væri því fært að leita með athugasemdir sínar til landlæknis, og eftir atvikum heilbrigðisráðherra eða sjúkratrygginga, en sjúkratryggingar hafa eftirlit með starfsemi aðila sem gert hafa samning við stofnunina, samkvæmt rammasamningi milli stofnunarinnar og talmeinafræðinga um talþjónustu á eigin stofum utan stofnana.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 24. mars 2026.