Sveitarfélög. Skattar og gjöld. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 166/2026)

A kvartaði yfir því að ekki stæði til boða að greiða álögð fasteignagjöld með reiðufé í tilgreindu sveitarfélagi.

Með hliðsjón af eftirlitshlutverki innviðaráðherra með starfsemi sveitarfélaga taldi umboðsmaður rétt að A leitaði með athugasemdir sínar til innviðaráðuneytisins áður en kvörtun A yrði tekin til meðferðar. Þar sem ekki lá fyrir að leitað hefði verið til ráðuneytisins lauk umboðsmaður umfjöllun sinni um kvörtunina

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 24. mars 2026.